BaraMatur
Um BaraMatur

Við elskum mat og við elskum að deila honum.

Einar og Geir, stofnendur BaraMatur
Einar & Geir · Stofnendur BaraMatur

Bak við BaraMatur erum við tveir. Strákar sem elska að elda og hafa deilt því með 15.800 manns á Instagram í nokkur ár. Núna erum við að flytja það samtal yfir á vef.

Hér færðu uppskriftir sem við eldum sjálf og lausnir sem við smíðum sjálf: innkaupalista sem talar við ísskápinn, næringu sem reiknast sjálfkrafa og matarboð sem plana sig nánast sjálf. Allt er smíðað af okkur tveimur og hugsað til þess að einfalda eldhúsið þitt.

Við höfum unnið að þessu í tæp tvö ár og erum rétt að byrja. Markmiðið er einfalt: að þú notfærir þér tæknina sem við höfum smíðað vandlega og finnir að hún hjálpar þér í alvöru.

Þetta er líka þinn vefur. Á meðan við keyrum BaraMatur upp viljum við heyra í þér. Hugmyndir, ábendingar, spurningar, gagnrýni. Allt vel þegið. Við hlökkum til að mæta ykkar kröfum og byggja þetta samfélag saman.

Engin uppskrift er vitlaus. Vertu með frá byrjun.

Fylgjendur
15.800+

Stærsta íslenska matarsamfélagið á Instagram.

Sjálf gerð
2 ár

Hönnun, kóði og innihald. Allt smíðað af okkur tveimur í tæp tvö ár.

Hugsjón
1

Endalausar uppskriftir, skrifaðar af fólki sem eldar.

Gæðaeftirlit okkar

Við erum með gæðaeftirlit á síðunni. Uppskriftir fara því í gegnum örstutt samþykktarferli og lagfæringu ef þess þarf áður en þær verða birtar.

Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og sérstaklega fyrir að deila uppskriftunum ykkar með okkur öllum.

Byrjun ferðalagsins

Segðu okkur hvað þér finnst. Það skiptir okkur máli.

Við erum rétt að keyra vefinn upp og hver einasta ábending, hugmynd eða kvörtun hjálpar okkur að byggja eitthvað sem virkar fyrir ykkur. Skrifaðu okkur á baramatur@baramatur.is eða sendu okkur DM á Instagram. Við svörum.

Hafa samband: baramatur@baramatur.is

Um okkur · BaraMatur