
Steik & pasta
nautasteik og tagliatelle
Aðferð
- 1
Sjóðið pastað í vel söltu vatni þar til það er al dente. Takið frá um 150 ml af pastavatni áður en pastað er sigtað.
- 2
Hreinsið steikina og kryddið vel með salti og pipar.
- 3
Hitið pönnu á háum hita. Bætið ólífuolíu út í. Steikið steikina í 2–3 mínútur á hvorri hlið (medium-rare er best).
- 4
Bætið smjöri, hvítlauk og kryddurtum út á og ausið smjörinu yfir steikina.
- 5
Takið steikina af pönnunni og látið hvíla í 5 mínútur.
- 6
Lækkið hitann, setjið smjör á sömu pönnu og steikið lauk í 2–3 mínútur. Bætið söxuðum hvítlauk út og leyfið að steikjast aðeins (hér má setja á smá hvítvin með). Bætið rjóma og sinnep út í og látið malla í 2–3 mínútur.
- 7
Hrærið parmesan út í og þynnið með pastavatni þar til sósan er silkimjúk. Bætið pastanu í sósuna og blandið vel.
- 8
Berið fram í skál, skerið kjötið í sneiðar og leggið yfir pastað. Toppið með saxaðri steinselju.
Hvernig var uppskriftin?
Gefðu frá 1 upp í 5 stjörnur. Athugasemd er valkvæm.
Skráðu þig inn til að skrá einkunnina þína.
